Fyrir okkur sem sjá það fallega í gömlum og notuðum
hlutum sem hafa sál...
Fyrir okkur sem viljum nýta og endurnýta fallega
muni...
Fyrir okkur sem viljum minnast liðinnar tíðar...
...hef ég skapað nýja vintage línu, þar sem ég nota
nýtt og gamalt í bland. Þannig fá hlutir frá gömlum skartgripum,
innréttingarmunum og fleiru nýtt líf! Hver og einn skartgripur verður því
einstakur og aldrei tveir eins.
Með þessu móti vil ég fagna því gamla,slitna og
notaða...